Ídýfan sem vekur stormandi lukku!

Slengið þessari strax á borðið!
Slengið þessari strax á borðið! mbl.is/Therecipecritic.com

Þetta er alls ekkert flókið, því þessi girnilega ídýfa mun fara á „uppáhalds-listann“ frá og með núna. Hér eru einungis fimm hráefni að vinna saman og útkoman er upp á tíu. Það má vel skipta út majónesinu með sýrðum rjóma eða grískri jógúrt fyrir þá sem það vilja en við mælum með majó í þessu tilviki.

Ídýfan sem slær alls staðar í gegn

  • Vorlaukur, saxaður
  • 230 g cheddar-ostur, rifinn
  • 1½ bolli majónes
  • ½ bolli beikon, steikt og saxað niður
  • ½ bolli möndluflögur eða niðurskornar möndlur

Aðferð:

  1. Setjið öll hráefnin í skál og blandið vel saman.
  2. Geymið í ísskáp í minnsta kosti 2 tíma áður en ídýfan er borin fram.
Allt sem til þarf í girnilega ídýfu.
Allt sem til þarf í girnilega ídýfu. mbl.is/Therecipecritic.com
Slengið þessari strax á borðið!
Slengið þessari strax á borðið! mbl.is/Therecipecritic.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert