Það er afar mikilvægt þegar viðrar jafn vel og gert hefur í sumar að hámarka stemninguna á pallinum og bjóða upp á vandaðar veitingar sem veita grönnum og gangandi gleði.
Ef einhver hefur fullkomnað þetta listform þá er það Berglind Hreiðars á Gotteri.is og hér er hún með þrjár mismunandi útgáfur af Moscow Mule.
Moscow Mule
Hver uppskrift hér að neðan dugar í 2 könnur/glös
Hefðbundinn Moscow Mule
- 120 ml Stolichnaya vodka
- 1 x lime (safinn)
- 250 ml Stoli ginger beer
- Klakar
- Fersk mynta og lime-sneið til skrauts
Aðferð:
- Fyllið könnuna af klökum til hálfs.
- Hellið vodka í könnuna, kreistið lime yfir og fyllið upp í með engiferbjór.
- Hrærið saman með röri og skreytið með ferskri myntu og lime-sneið.
mbl.is/Berglind Hreiðarsdóttir
Jarðarberja Moscow Mule
- 10 stk jarðarber
- 1 lúka fersk mynta
- 120 ml Stolichnaya vodka
- 1 x lime (safinn)
- 250 ml Stoli ginger beer
- Klakar
- Fersk mynta og jarðarber til skrauts
Aðferð:
- Maukið jarðarber og myntu í blandara.
- Fyllið könnuna af klökum til hálfs.
- Hellið jarðarberjamauki og vodka í könnuna, kreistið lime yfir og fyllið upp í með engiferbjór.
- Hrærið saman með röri og skreytið með ferskri myntu og jarðarberi.
mbl.is/Berglind Hreiðarsdóttir
Bláberja Moscow Mule
- 125 g bláber
- 120 ml Stolichnaya vodka
- 1 x lime (safinn)
- 250 ml Stoli ginger beer
- Klakar
- Fersk bláber og limesneið til skrauts
Aðferð:
- Maukið bláber í blandara.
- Fyllið könnuna af klökum til hálfs.
- Hellið bláberjamauki og vodka í könnuna, kreistið lime yfir og fyllið upp í með engiferbjór.
- Hrærið saman með röri og skreytið með ferskum bláberjum og lime-sneið.
mbl.is/Berglind Hreiðarsdóttir