Jólatré fyrir þá sem búa smátt

Það er einfalt að útfæra jólatré beint á vegginn.
Það er einfalt að útfæra jólatré beint á vegginn. Mbl.is/©Bosch

Plássleysi á alls ekki að vera fyrirstaða í að vera með jólatré. Hér er snillings lausn á þessum vanda og er þrælsniðug ef þið spyrjið okkur.

Græjurnar sem þarf í verkið

  • 2-3 grenibúnt
  • 3 trélista, 240 x 3 x 0,5 cm
  • Sög
  • Double tape eða annarskonar límband sem þolir þunga
  • Heftibyssu og klemmur

Aðferð:

  1. Skerið listana til, þannig að þeir verði alltaf breiðari og breiðari. Hér er gott að miða við 10 lista, þar sem neðsti er um 1 meter og sá efsti 10 cm.
  2. Festið grenið á listana með heftibyssu.
  3. Setjið tape eða annað lím aftan á listana og festið á vegginn. Ef þú vilt ekki líma listana á vegginn, má auðveldlega nota girni í hvern og einn lista og hengja upp.
  4. Þegar allir listarnir með greninu eru komnir upp, þá er ekki eftir neinu að bíða en að skreyta.
Sagið listana til í réttar stærðir.
Sagið listana til í réttar stærðir. Mbl.is/©Bosch
Festið grenið með heftibyssu.
Festið grenið með heftibyssu. Mbl.is/©Bosch
Setjið límband á listana og festið þannig á vegginn.
Setjið límband á listana og festið þannig á vegginn. Mbl.is/©Bosch
Mbl.is/©Bosch
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert