Bollurnar eru mættar í bakarí og verslanir og það er ljóst að landinn er spenntur. Bakaríin bjóða flest upp á afar skemmtilegar útfærslur af bollum, Deig er með djúpsteiktar og svo mætti lengi telja. Í Hagkaup eru fylltar bollur mættar en í lang flestum verslunum er nú hægt að kaupa bollur tilbúnar til fyllingar. Í sumum tilfellum fylgir súkkulaðið með.
Miðbærinn var líka sérlega lifandi í morgun þrátt fyrir leiðinlegt veður. Mikið var af ferðamönnum voru hressir þrátt fyrir veðrið. Á Laundromat í Austurstræti var allt fullt og því ljóst að það er bjart framundan ef marka má brosin á ánægðum bolluunnendum.