Brokkolísalaat sem þetta er ómissandi með kjúklingaréttinum eða eitt og sér ef því er að skipta. Rétturinn er í boði Helgu Möggu sem segir uppskriftina vera vegan.
Meðlætið sem hentar með flestum mat
- 150 g brokkolí
- 150 g paprika
- 210 g kjúklingabaunir niðursoðnar (ein krukka)
- 60 g þurrkuð trönuber
Sósa
- 50 g tahini
- sítrónusafi úr hálfri sítrónu (um 30ml)
- 4-5 msk. heitt vatn
- 1 hvítlauksgeiri
- 10 g fiber sýróp/maple sýróp (2 tsk.)
- 1 tsk. karrý
- 5 g ferskt engifer
- 1/2 tsk. turmerik duft
- salt og pipar
Aðferð:
- Allt skorið smátt niður og blandað saman í skál. Ég tek hýðið af kjúklingabaununum en það er smekksatriði. Líka mjög gott að setja 25 gr blaðlauk og smá kóríander, ég set það með ef ég á það til.
- Sósan: Gott að gera hana í blandara, henni er svo hellt yfir salatið og öllu blandað vel saman.