Hátíð var í bæ á Borg Restaurant 20. desember síðastliðin þar sem Jólabolla Barþjónaklúbbs Íslands fór fram. Bollan er árlegur góðgerðaviðburður, en í ár rann allur ágóði til Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur. Gestir gátu því gætt sér á ljúffengum jóla-bollum og á sama tíma styrkt gott málefni! DJ De La Rosa sá gestum fyrir ljúfum tónum til þess að koma fólki í jólaskapið.
Alls tóku átta veitingahús og barir þátt og kepptu við hvort annað um hver var með bestu jólabolluna og var markmið þeirra að draga sem flesta á sinn bás og safna saman drykkjarmiðum sem seldir voru í dyrunum. Staðirnir sem tóku þátt í ár voru eftirfarandi:
Sá staður sem reiddi fram mest að bollu og endaði þannig sem sigurvegari var enginn annar en barinn sem kemur til þín, Reykjavík Cocktails. Þeir voru með ljúffenga „plantation Egg-Nogg bollu" sem þyrstir gestir fengu hreinlega ekki nóg af. Verðlaunin voru ekki í verri kantinum en sigurvegarinn fékk að afhenda allan ágóða kvöldsins til Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur í formi risastórar ávísunar. Alls voru um 300 drykkir reiddir fram um kvöldið og safnaðist því 231.000,- krónur.
Einnig fór fram keppnin um ljótasta/flottasta jóla ,,dressið‘‘ en það var hann Karl Pálsson (Kalli) sem sem kom, sá og sigraði. Fékk hann að verðlaunum fljótandi veigar frá Mekka Wines & Spirits.