Eitt af mörkum tímabilsins (myndskeið)

Rodrigo Muniz skoraði stórkostlegt mark er Fulham og Sheffield United skildu jöfn, 3:3, í miklum markaleik í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Muniz jafnaði í 3:3 í uppbótartíma með glæsilegri bakfallsspyrnu. Ben Brereton Díaz kom Sheffield United í 3:1 á 70. mínútu en Fulham neitaði að gefast upp og tókst að jafna.

Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan, en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert