Son var hetja Tottenham (myndskeið)

Heung-min Son var hetja Tottenham í sigri liðsins á Luton, 2:1, í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Sóknarmaðurinn frá Suður-Kóreu skoraði sigurmarkið á 86. mínútu. Tahith Chong hafði komið Luton yfir á 3. mínútu og Issa Kaboré jafnað með sjálfsmarki.

Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan, en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert