Fór á kostum gegn gamla liðinu

Jón Daði Böðvarsson skoraði þriðja mark Bolton.
Jón Daði Böðvarsson skoraði þriðja mark Bolton. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Bolton vann öruggan sigur á Reading, 5:2, í C-deild enska fótboltans í dag.

Jón Daði Böðvarsson, sem lék áður með Reading, skoraði þriðja mark Bolton á 49. mínútu er hann kom liðinu í 3:1. Hann innsiglaði síðan þriggja marka sigur með marki í uppbótartíma. 

Selfyssingurinn lék allan leikinn með Bolton, sem er í þriðja sæti með 78 stig, þremur minna en Derby í öðru sæti og átta stigum á eftir toppliði Portsmouth.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert