Magnaðar afgreiðslur Fodens (myndskeið)

Phil Foden skoraði þrennu fyrir Manchester City þegar liðið vann öruggan sigur á Aston Villa, 4:1, í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

Markið var hvert öðru glæsilegra.

Rodri skoraði fyrsta mark heimamanna í Man. City áður en Jhon Durán jafnaði metin fyrir Villa.

Þá tók Foden til sinna ráða og var ekki aftur snúið eftir það.

Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér að ofan, en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samstarfi við Símann Sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert