Allar treyjur Arsenal verða með fallbyssumerki frekar en hefðbundna merki félagsins á næstu leiktíð.
Frá þessu greinir miðilinn The Athletic en þriðja treyja Arsenal ber fallbyssuna framan á. Þá bar varatreyja félagsins fallbyssuna á síðasta tímabili en fékk sú treyja mikið lof.
Fallbyssan hefur ávallt verið tengd við Arsenal og hafa Arsenal-menn fengið gælunafnið „skytturnar.“
Samkvæmt Athletic vill Arsenal að treyjurnar, sem eru hvað vinsælastar hjá stuðningsmönnum félagsins, endurspegli ríka sögu og hefð félagsins. Mun sú breyting því eiga sér stað á næsta tímabili.