Leikarinn Bruce Willis hefur upplýst að lögreglumaðurinn John McClane sem hann leikur í "Die Hard" myndunum muni láta lífið í fjórðu og síðustu myndinni en Willis lýsti því nýlega yfir að hann hefði fallist á að leika í henni.
Willis mun hafa sett þetta sem skilyrði fyrir því að leika í myndinni þar sem hann er sagður vilja binda enda á feril sinn sem McClane þar sem hann hafi fengið nóg af hrópum og köllum, eltinga- og byssuleikjunum.