Íbúum í húsi nálægt Barcelona á Spáni brá heldur í brún um helgina þegar lítil kyrkislanga birtist skyndilega í salerninu.
Lögregla var kölluð út í fyrrinótt til að fjarlægja metra langa slöngu úr húsi í Santa Coloma de Gramenet, úthverfi Barcelona. Slanga af þessari tegund hefst venjulega við í raka og hafði greinilega skriðið um skolprörið upp í salernið. Lögregla segist ekki vita hvaðan slangan hafi komið.