Deep Purple komin til landsins: Aldurinn skaðlegri heyrninni en rokkið

Þeir Roger Glover, Ian Gillan, Don Airey og Steve Morse …
Þeir Roger Glover, Ian Gillan, Don Airey og Steve Morse hlakka til að leika fyrir Íslendinga á ný. mbl.is/ÞÖK

Deep Purple mun halda tónleika í Laugardalshöllinni í kvöld, ekki í fyrsta sinn og ekki í það síðasta. Sveitin kom hingað til lands árið 1971 og lék í Höllinni og nú stendur til að hafa tónleikana tvenna, í kvöld og annað kvöld.

Liðsmenn sveitarinnar komu til landsins í gær og sátu blaðamannafund utan Ian Paice sem væntanlegur var síðar um kvöldið.

Þeir Ian Gillan, Roger Glover, Don Airey og Steve Morse voru kátir við komuna og hlökkuðu mikið til að leika fyrir íslenska áhorfendur. Þeir sögðust vera endurnærðir eftir nokkurra vikna frí frá spilamennsku og lofuðu kraftmiklum tónleikum

Þeim er fyrri Íslandsferðin enn í fersku minni. Roger Glover sagði í samtali við Morgunblaðið fyrr í vikunni að honum væri þó minnisstæðast þegar hljómsveitin sat í bíl pikkföstum í leðju fyrir utan Höllina. Bíllinn átti að ferja hjómsveitarmeðlimi undan æstum áhorfendum en Glover sagði múginn þó hafa labbað hinn rólegasta framhjá án þess svo mikið sem að líta í áttina að hinum pikkfasta flóttabíl.

Ian Gillan sló á létta strengi og kvaðst enn ekki búinn að jafna sig eftir þessa viðburðaríku tónleika sem hann söng og lék á hér á Íslandi fyrir 33 árum.

Glover sagðist taka sérstaklega eftir því að Reykvíkingar hafi komið sér upp talsvert fleiri byggingum síðan síðast. "Síðast gistum við í hæstu byggingu í Reykjavík. Mig minnir að hún hafi verið 5 hæðir," sagði Glover.

Gamalt og nýtt efni í bland

Aðspurðir sögðust Deep Purple ætla að leika blöndu af gömlu og nýju efni fyrir Íslendinga.

Söngvarinn Ian Gillan sagðist þó ekki hætta sér lengur í flutninga á laginu "Child in Time".

"Fyrir 20 árum ákvað ég að vera ekki enn gólandi úr mér garnirnar þegar ég yrði sextugur og það styttist í það," sagði hann.

"Ég verð einfaldlega að passa uppá röddina. Ef ég syng þetta á hverjum tónleikum verður það á kostnað hinna laganna."

Don Airey hefur verið liðsmaður sveitarinnar í 3 ár. Hann sagðist þó hreint ekki líta á sig sem "nýja gaurinn" í bandinu og kvaðst vera jafnrótgróinn og hinir fjórir.

Þeir sem staddir voru í Höllinni 18. júní 1971 muna eflaust eftir tilþrifum þáverandi gítarleikans, Richie Blackmore, þegar hann mölbraut gítarinn sinn á sviðinu. Steve Morse sagðist þó ekki ætla að feta í fótspor forvera síns.

"Gítarinn minn er 20 ár gamall svo hann brýt ég ekki. En ef þið útvegið mér annan gítar skal ég brjóta hann," sagði hann.

Fjórmenningarnir vildu ekki meina að áratuga spilamennska hefði haft einhver áhrif á heyrn þeirra félaga.

"Aldur gerir heyrninni meiri skaða en rokk og ról," sagði Roger Glover að lokum.

Uppselt er á tónleikana á fimmtudagskvöldið en enn eru fáanlegir miðar á tónleika kvöldsins. Miðasala fer fram á Hard Rock Café.

birta@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant