Matt Groening, höfundur Simpsons, segir æ erfiðara að finna nýja söguþræði í þáttunum um Hómer, Marge og börn þeirra og vill að framleiðslu þáttanna verði hætt áður en þeir verði „of leiðinlegir.“ Að því er Ananova greinir frá hefur hann undirritað samning við leikarana sem túlka Bart, Hómer, Marge og Lísu um gerð 19 þáttaraðarinnar um Simpson fjölskylduna, en hún verður tekin upp árið 2008.
Hann vonast svo til að ein þáttaröð til viðbótar verði gerð árið 2009. Matt, sem er fimmtugur sagði í samtali við The Sun: „Velgengni Simpsons hefur verið ótrúleg.“ „En það verður erfiðara að gera þættina með hverju árinu sem líður því við erum alltaf að reyna að koma áhorfendum á óvart, sem og okkur sjálfum,“ sagði Groening.
„Mér þætti gaman að ná að gera 365 þætti svo það verði einn þáttur fyrir hvern dag ársins og engar endurtekningar eigi sér stað,“ bætti hann við.
Groening sagði að í síðustu fimm þáttaröðunum fengju hliðarpersónur í þáttunum, svo sem Milhouse, vinur Bart, veigameiri hlutverk. „Ég held að við munum sjá meira fjallað um aðrar íbúa Springfield,“ sagði Groening.