Aðdáendur Harry Potter ættu að krossleggja fingur því að voveiflegur dauðdagi mun eiga sér stað í næstu bók, sem kallast Harry Potter og blendingsprinsinn (Harry Potter And The Half-Blood Prince).
Höfundurinn, JK Rowling, upplýsti á heimasíðu sinni um þetta þegar aðdáandi spurði hana hvort hún hygðist drepa fleiri söguhetjur. "Já, því miður," var svar hennar.
Veðmál eru þegar farin í gang hjá veðmöngurum. Veðbankinn William Hill telur Hagrid líklegastan, svo er það Dumbledore og Malfoy. Líkurnar á því að Harry sjálfur deyi eru taldar þrjátíu og þrír á móti einum.