Stærðfræðisnillingur leysir ofurdæmi á methraða

38 ára Þjóðverji með gráðu í sálfræði, menntunarfræði og tölvufræði þurfti aðeins 11,8 sekúndur til að finna í huganum 13. rót 100 stafa tölu og setti þar með heimsmet. Sjónarvottar, sem notuðu vasareikna, voru lengur að leysa dæmið. Maðurinn, sem heitir Gert Mittring, setti þetta met í stærðfræðisafni í þýska bænum Giessen, nærri Frankfurt, í gærkvöldi.

„Ég byrja á því að finna sniðuga reikniaðferð og niðurstaðan kemur þegar í stað,“ sagði Mittring. Fyrra metið, 13,55 sekúndur, setti Frakkinn Alexis Lemaire árið 2002.

Mittring fær þó metið ekki skráð í Heimsmetabók Guinness, þar sem Guinnes-menn hafa hætt að skrá met í þessari grein. Það er vegna þess að erfitt er að setja staðla um hana. „Það er mismunandi erfitt að finna rætur talna,“ segir talsmaður Guinness. „En það gerir þetta afrek Mittrings ekki lítilvægara. Hann er hreint ótrúlegur. Hann hefur lagt 22 handahófsvaldar tölur á minnið á fjórum sekúndum, sem er heimsmet.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson