Leikararnir úr kvikmyndunum um Hringadróttinssögu segjast tilbúnir til að taka þátt í kvikmynd eftir sögunni Hobbitinn sem er einnig eftir J.R.R. Tolkien og er nokkurs konar forsaga Hringadróttinssögu. Þeir hafa lofað að taka þátt ef Peter Jackson leikstjóri vilji gera slíka mynd en hann hefur sagst hafa áhuga á því.
„Fólk langar svo til að við gerum þetta. Það hefur verið rætt um að við leikum ættingja persónanna okkar. Ég er viss um að við myndum allir reyna að vera með í því,“ segir Billy Boyd, sem leikur Pippin.