Nicole Kidman langar afskaplega mikið til að ganga með og eignast barn

Nicole Kidman.
Nicole Kidman.

Ástralska leikkonan Nicole Kidman hefur sagt frá því að sig langi afskaplega mikið til að ganga með og eignast barn áður en hún verði „of gömul“. Kidman er 37 ára.

Hefur breska blaðið The Sun eftir leikkonunni: „Mig langar virkilega til að verða ólétt, mig langar mikið í barn.“

Frá þessu greinir Ananova.com.

Nicole á tvö ættleidd börn frá hjónabandi sínu með Tom Cruise. Hún segir ennfremur að sig langi til að giftast aftur.

„Ég myndi gjarnan vilja giftast aftur. Það er æðislegt að ala upp barn, en það þarf tvo til. Ég er ekki viss um að ég sé fær um það ein.“

Undanfarið hefur Kidman ítrekað sést á stefnumótum við kvikmyndaframleiðandann og milljarðamæringinn Steve Bing, sem er barnsfaðir Elizabeth Hurley.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Varastu að gera nokkuð það sem getur valdið misskilningi um fyrirætlanir þínar. Aðeins vel upplýstur maður getur innt þau störf af hendi, sem þér eru falin.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riley og Lucinda Riely
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Varastu að gera nokkuð það sem getur valdið misskilningi um fyrirætlanir þínar. Aðeins vel upplýstur maður getur innt þau störf af hendi, sem þér eru falin.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riley og Lucinda Riely
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg