Paul McCartney hefur viðurkennt að hann fari reglulega á snyrtistofu til að láta setja á sig gervineglur svo hann eigi auðveldara með að spila á gítar. Hann segir að eiginkona sín, Heather Mills, hafi átt hugmyndina en hann mun í 40 ár hafa kvartað yfir því að gítarglamrið færi illa með hendur sínar.
„Þegar ég slæ á strengina með puttunum eyðast neglurnar upp. Fyrir nokkrum árum stakk Heather upp á því að ég léti setja gervineglur á mig. "Nei, ég get það ekki" sagði ég, en svo prófaði ég þetta í síðustu tónleikaferð og þetta virkar stórvel,“ á McCartney að hafa sagt í viðtali við The Sun, en sagt er frá því á vefmiðlinum Ananova.