Sjötta Harry Potter bókin kemur út 16. júlí

Aðdáendur galdrastráksins Harry Potters geta nú glaðst því sjötta bókin …
Aðdáendur galdrastráksins Harry Potters geta nú glaðst því sjötta bókin er væntanleg. AP

Sjötta Harry Potter bókin kemur í verslanir 16. júlí á næsta ári. Verður nýja bókin, Harry Potter og hálfi prinsinn, gefin út á sama tíma í Bretlandi, Bandaríkjunum, Kanada, Ástralíu, Nýja Sjálandi og Suður-Afríku. J.K. Rowling, höfundur bókanna, sagði fyrr í dag að hún hefði lokið við að skrifa bókina. Það var Bloomsbury sem gefur bækurnar út í Bretlandi sem tilkynnti útgáfudaginn fyrir stundu, en hlutabréf í fyrirtækinu hækkuðu um 7% er þetta var tilkynnt.

Snæbjörn Arngrímsson hjá bókaútgáfunni Bjarti segist búast við að bókin komi út á íslensku í lok október eða byrjun nóvember. „Við stefnum á 30. eða 31. október, það ætti nást að þýða hana fyrir þann tíma. Það hefur að minnsta kosti tekist með fyrri bækurnar,“ sagði Snæbjörn.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hugsanlegt er að þú verðir með hugmynd tengda tekjum og fjármálum á heilanum í dag. Gæfan er þér hliðholl í augnablikinu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Unnur Lilja Aradóttir
3
Torill Thorup
4
Steindór Ívarsson
5
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hugsanlegt er að þú verðir með hugmynd tengda tekjum og fjármálum á heilanum í dag. Gæfan er þér hliðholl í augnablikinu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Unnur Lilja Aradóttir
3
Torill Thorup
4
Steindór Ívarsson
5
Birgitta H. Halldórsdóttir