Leikarinn vinsæli, Will Smith, hefur farið þess á leit við kvenkyns aðdáendur sína að þær hætti að biðja hann um að rita nafn sitt á brjóst þeirra. Segir Smith að hann vilji ekki reita kærasta kvennanna til reiði.
Will segist ekki kunna vel við að rita nafn sitt á brjóst aðdáenda vegna þess að í flestum tilfellum fylgist unnustar þeirra með því sem á sér stað, að því er Ananova greinir frá og hefur eftir Contactmusic.com.
„Að stelpa biðji mig um eiginhandaráritun á brjóstin á sér er skrýtið... að fara bara úr að ofan eins og ekkert sé á almannafæri. Kærastar þeirra sjá að ég hef ritað á brjóst þeirra. Það finnst mér skrýtið,“ segir leikarinn.