Davíð Smári Harðarson, "Ballöðukóngurinn úr Idol" eins og segir í fréttatilkynningu, mun gefa út sólóplötu á vegum Senu í júní.
„Þetta verður róleg plata, í þessum létthlustunargír," segir Davíð í samtali við blaðamann. „Platan mun innihalda tökulög úr ýmsum áttum, misþekkt. Þórir Úlfarsson stýrir upptökum en ég, Þórir og Eiður hjá Senu völdum lögin í sameiningu. Sjóaðir leiguspilarar á borð við Gumma P. og Haffa Guðmunds sjá um undirleik."
Nánar er rætt við Davíð Smára í Morgunblaðinu í dag.