Netspilavítið Goldenpalace.com mun hafa auglýst til sölu jákvæða þungunarprófið sem fyrst gaf Britney Spears vísbendingu um að hún væri barnshafandi. Mun stauturinn, með þvagsýni og öllu saman, hafa fundist í rustafötu á baðherbergi á hóteli í Los Angeles. Frá þessu greinir Ananova og hefur eftir Female First.
Segir sagan að það hafi verið kanadísk útvarpsstöð, New Hot 89,9, sem fyrst keypti þungunarprófið af „tengilið“ á umræddu hóteli, sem ekki er nefnt á nafn, þar sem Britney mun hafa gist.
Samkvæmt frétt Ananovu ætlar Goldenpalace að gefa söluandvirði prófsins til góðgerðarmála.