Kvikmyndin Doom, sem byggir á samnefndum tölvuleik, fékk mesta aðsókn í kvikmyndahúsum í Norður-Ameríku um helgina. Eins og í tölvuleiknum liggja margir í valnum en fyrir hetjunum fer harðjaxlinn Dwayne „The Rock" Johnson eða Bergur eins og hann hefur stundum verið nefndur hér á landi.
Barnamyndin Dreamer fór beint í 2. sætið á listanum. Myndin er sögð vera sannsöguleg en með aðalhlutverk fara Kurt Russell, Dakota Fanning, Kris Kristofferson og Elisabeth Shue. Hún hefur fengið þokkalega dóma gagnrýnenda.
Leikbrúðumyndin Wallace & Gromit: The Curse of the Were-Rabbit, er í 3. sæti og í næstu sætum eru, The Fog, North Country, Elizabethtown, Flightplan, In Her Shoes, A History of Violence og Two for the Money.