Suður-Afríska leikkonan Charlize Theron hefur hafnað boði um að leika í nýju James Bond-myndinni Casino Royale. Eru framleiðendur myndarinnar nú í töluverðum vandræðum því að Theron er ekki fyrsta þekkta leikkonan sem hafnar boðinu, bæði Angelina Jolie og Scarlett Johansson hafa sagt nei takk. Hafa framleiðendurnir nú aðeins einn mánuð til að finna konu í hlutverkið.