Tesco varar við hnetum í hnetupökkum og mjólk í mjólkurvörum

Mjólkurvörur sem innihalda mjólk.
Mjólkurvörur sem innihalda mjólk. Morgunblaðið/ Ómar

Breska verslunarkeðjan Tesco hefur orðið að athlægi í Bretlandi upp á síðkastið fyrir að vara við því að pakkar af hnetum innihaldi hnetur og að mjólkurflöskur innihaldi mjólkurvörur. Miðar hafa verið límdir á umbúðir til þess að vara fólk með hnetu- eða mjólkurofnæmi við.

Varúðarmiðar hafa einnig verið límdir á rjómafernur og smjörumbúðir, en á smjörinu stendur að það innihaldi mjólk og salt. Stjórnandi matarofnæmisherferðar í Bretlandi, David Reading, hlær að merkingunum og segir slíkar merkingar gera lítið úr því mikla vandamáli bráðaofnæmi fyrir mat. Þó hljóti þeir neytendur að vera til sem skorti heilbrigða skynsemi og það geti réttlætt slíkar merkingar.

Talsmaður Tesco segir nauðsynlegt að veita neytendum allar þær upplýsingar sem hægt sé að veita. Fréttavefur Sky greinir frá þessu.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Einsettu þér að halda jafnvægi á milli einkalífs og vinnunnar og þá koma hlutirnir af sjálfu sér. Ekki missa kjarkinn þó illa gangi að fjármagna verkefni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Unnur Lilja Aradóttir
2
Kathryn Hughes
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Torill Thorup
5
Jenny Colgan
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Einsettu þér að halda jafnvægi á milli einkalífs og vinnunnar og þá koma hlutirnir af sjálfu sér. Ekki missa kjarkinn þó illa gangi að fjármagna verkefni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Unnur Lilja Aradóttir
2
Kathryn Hughes
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Torill Thorup
5
Jenny Colgan