Draumakonan hans George Clooney er góð blanda af Nicole Kidman, Juliu Roberts, Michelle Pfeffer og Jennifer Lopez. Clooney er á lausu og segist vera að leita að lífsförunaut en hann gerir miklar kröfur í þessum efnum. „Draumakonan mín þarf að hafa hláturinn hennar Nicole Kidman, persónuleika Juliu Roberts og fegurð Michelle Pfeiffer. Allt þetta og metnaðargirnina hennar Jennifer Lopez,” sagði Clooney.
Clooney, sem hefur verið orðaður við hina „aðþrengdu eiginkonu” Teri Hatcher, viðurkenndi nýlega að hann væri orðinn leiður á því að vera einsamall en hefur misst trúna á að hann hitti hina einu sönnu.
Clooney er 44 ára og reiðubúinn til að snúa bakinu við piparsveinsferlinum, en ekki til að fara út í barneignir. „Ég er ekki viss um að ég yrði svo góður faðir. Það er ekki eitthvað sem maður getur gert með hangandi hendi. Ef maður klúðrar því þá hefur maður klúðrað mörgum kynslóðum. Ég vil ekki bera ábyrgð á að særa einhvern annan en sjálfan mig.”