Bandaríski ljósmyndarinn Spencer Tunick hefur nú ljósmyndað allsbera Venesúelamenn í Caracas, höfuðborg Venesúela, en Tunick hefur ferðast vítt og breitt um heiminn og myndað nakið fólk á ólíkum svæðum. Tunick biður fólk um að koma á ákveðinn stað á ákveðinni stund og fækka fötum og hafa viðbrögðin ekki látið á sér standa.
Meðal þeirra sem hópast hafa naktir saman eru Bandaríkjamenn, Argentínumenn, Nýsjálendingar og Chilebúar. Myndirnar verður hægt að sjá í ljósmyndabók sem Tunick er að safna efni í.