Axl Rose, forsprakki rokkhljómsveitarinnar Guns N' Roses kom á óvart í útvarpsviðtali þegar hann greindi frá því að plata hljómsveitarinnar Chinese Democracy myndi koma út í haust.
Hefur platan verið í vinnslu í áratug. Áður hefur verið haft eftir Rose að um mjög flókna plötu sé að ræða.
Undanfarin ár hefur nokkuð verið rætt um geðheilsu Rose en hann heldur því fram að hann sé mjög venjulegur náungi ólíkt því sem margir halda.