Íslenskir aðdáendur „thrash"-rokkhljómsveitarinnar Slayer hafa væntanlega þóst hafa himin höndum tekið þegar það kvisaðist út á miðvikudaginn að hljómsveitin væri á leiðinni til Íslands. Ástæðan er sú að á heimasíðu hljómsveitarinnar kom fram að sveitin hygðist enda tónleikaferðalag sitt hérlendis í nóvember.
Svo virðist hins vegar sem rangar upplýsingar hafi birst á heimasíðunni og samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hyggst hljómsveitin ekki koma við á Íslandi eins og sakir standa. Hins vegar var ekki hægt að útiloka að áætlanir sveitarinnar kynnu að breytast þannig að íslenskir aðdáendur hennar geta enn haldið í vonina.