Írska lögreglan stöðvaði líkbíl sem fór fyrir líkfylgd fyrir of hraðan akstur og sektaði fleiri bílstjóra í líkfylgdinni. Óku þeir á 69 km hraða þar sem hámarkshraðinn er 50 km. Reuters fréttastofan skýrir frá því að mörg hundruð ökumanna voru teknir á sömu slóðum í átaki lögreglunnar gegn of hröðum akstri í síðasta mánuði.
Bílstjóri líkbílsins, John Carr sagðist ekki hafa miklar áhyggjur af því að fá punkta því hann hygðist ekki aka mjög hratt í framtíðinni.