Douglas ætlar aldrei aftur að leika nakinn

Michael Douglas með eiginkonu sinni Catherine Zeta Jones.
Michael Douglas með eiginkonu sinni Catherine Zeta Jones. Reuters

Leikarinn Michael Douglas segist aldrei ætla að leika aftur berrassaður. Douglas er nú orðinn 61 árs og hefur striplast í tíu kvikmyndum, en sjálfsagt er eftirminnilegast nektaratriðið í Basic Instinct þar sem Douglas er í V-hálsmálspeysu einni fata.

Breska dagblaðið Daily Mirror hefur það eftir Douglas að hann muni ekki leysa niður um sig aftur fyrir kvikmyndavélarnar. „Ég gyrði ekki niður um mig aftur. Ég ætlaði hvort eð er aldrei að leika í framhaldsmyndinni (Basic Instinct 2),“ segir Douglas. Douglas viðurkenndi fyrir nokkrum árum að hann væri kynlífsfíkill og varð alræmdur í Hollywood fyrir að vilja ekki nota staðgengil í kynlífsatriðin heldur leika í þeim sjálfur.

Douglas er kvæntur leikkonunni Catherine Zeta-Jones, sem er 36 ára og eiga þau tvö börn. Douglas segist nú heldur kjósa kvikmyndahlutverk sem reyna ekki mikið á líkamann.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Gamall vinur gefur þér góð ráð í dag. Dragðu djúpt andann og veltu því fyrir þér, hvaða breytingar þú vilt gera.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Gamall vinur gefur þér góð ráð í dag. Dragðu djúpt andann og veltu því fyrir þér, hvaða breytingar þú vilt gera.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir