Magni, Dilana, Toby, Storm og húsbandið úr Rock Star: Supernova þáttunum mæta til leiks á tónleikum í Laugardalshöllinni þann 30. nóvember auk þess sem hljómsveitin Á móti sól mun hita upp með lögum af væntanlegri plötu sveitarinnar. Vegna mikillar eftirspurnar hefur aukatónleikum verið bætt við 1. desember í Laugardalshöllinni.
Miðasala á aukatónleikana þann 1. desember hefst þriðjudaginn 21. nóvember kl. 12:00 hjá midi.is og í verslunum Skífunnar. Þá er einnig hægt að nálgast miða hjá verslunum BT á Akureyri og Egilstöðum, að því er segir í tilkynningu.