Pamela sækir um skilnað frá Kid Rock

Pamela Anderson.
Pamela Anderson. Reuters

Bandaríska leikkonan Pamela Anderson hefur sótt um skilnað frá tónlistarmanninum Kid Rock eftir tæplega fjögurra mánaða hjónaband. Leikkonan staðfesti þetta á heimasíðu sinni í kvöld en ekki hefur verið upplýst hver ástæðan er. Kid Rock, sem heitir réttu nafni Bob Ritchie, hefur ekki tjáð sig um málið.

Þau Anderson, sem er 39 ára, og Ritchie, sem er 35 ára, trúlofuðu sig fyrst árið 2002 en hættu saman ári síðar. Þau hittust á ný fyrr á þessu ári og giftu sig þrívegis í sumar, fyrst nálægt St. Tropez í Frakklandi í júlí, aftur í Beverly Hills í Kalíforníu í ágúst og í þriðja skiptið í Nashville í Tennessee.

Í byrjun nóvember staðfesti talsmaður Anderson að hún hefði misst fóstur nýlega. Hún á tvo syni, 8 og 10 ára, með tónlistarmanninum Tommy Lee. Ritchie á 13 ára gamlan son.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Varastu að gera nokkuð það sem getur valdið misskilningi um fyrirætlanir þínar. Aðeins vel upplýstur maður getur innt þau störf af hendi, sem þér eru falin.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riley og Lucinda Riely
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Varastu að gera nokkuð það sem getur valdið misskilningi um fyrirætlanir þínar. Aðeins vel upplýstur maður getur innt þau störf af hendi, sem þér eru falin.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riley og Lucinda Riely
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg