Britney snoðklippt á húðflúrsstofu

Britney Spears
Britney Spears AP

Söngkonan Britney Spears veldur Gróu á leiti enn áhyggjum en fregnir herma að Spears hafi mætt nauðasköllótt á húðflúrsstofu í Kaliforníu og látið flúra tvennar varir, rauðar og bleikar á úlnlið sinn. Þá segir á vefsíðu People tímaritsins að Britney hafi skráð sig inn á meðferðarstofnun Erics Clapton skömmu áður, en hún mun hafa staldrað stutt við því hún var komin úr deginum síðar og fór þess í stað á áðurnefnda húðflúrsstofu.

Veislugleði og klæðaburður Spears hefur vakið mikla athygli að undanförnu, en svo virðist sem fyrrverandi eiginmaður hennar, dansarinn Kevin Federline hafi ekki haft þau slæmu áhrif á söngkonuna sem hann var sakaður um. Söngkonan hefur a.m.k. virst stjórnlítil síðan hún sagði skilið við Federline.

Starfsmaður húðflúrsstofunnar, Derrik Snell, segir þó að Spears hafi virst í ágætu jafnvægi þegar hún kom þangað þrátt fyrir hárgreiðsluna nýju.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Sýndu öðrum tillitssemi og umburðarlyndi og þú munt fá þá framkomu endurgoldna þúsundfalt. Lærðu af reynslunni og mundu að ekki hafa allir sömu kímnigáfu og þú.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Torill Thorup
3
Steindór Ívarsson
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Sýndu öðrum tillitssemi og umburðarlyndi og þú munt fá þá framkomu endurgoldna þúsundfalt. Lærðu af reynslunni og mundu að ekki hafa allir sömu kímnigáfu og þú.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Torill Thorup
3
Steindór Ívarsson
4
Birgitta H. Halldórsdóttir