Gréta María Kristinsdóttir frá Þingeyri var krýnd ungfrú Vestfirðir á fegurðarsamkeppni Vestfjarða, sem haldin var í gærkvöldi. Það var Margrét Magnúsdóttir, Ungfrú Vestfirðir 2004, sem krýndi Grétu Maríu. Gréta María, sem er 19 ára, starfar sem leiðbeinandi á leikskóla.
Í öðru sæti var Vala Karen Viðarsdóttir og hún var einnig valin netstúlka en hana völdu lesendur heimasíðunnar skemmtun.it.is. Edith Guðmundsdóttir Hansen varð í þriðja sæti. Svala Sif Sigurgeirsdóttir var valin vinsælasta stúlkan og Guðrún Auður Böðvarsdóttir var valin sportstúlkan. Fegurðardrottningin sjálf var einnig kjörin besta ljósmyndafyrirsætan.