Söngkonan Janet Jackson, sem er 41 árs, segist finna fyrir þrýstingi um að eignast barn og íhugar að láta frysta egg til notkunar þegar hún telji sig reiðubúna fyrir móðurhlutverkið.
Janet Jackson, sem hefur verið með tónlistarframleiðandanum Jermaine Dupri frá árinu 2002, segir að það sé ekki bara vinir hennar og fjölskylda sem þrýsti á að hún fjölgi mannkyninu heldur einnig fólk sem hún þekkir ekki neitt. Hún segist hins vegar vera mikið barn í sér og elski að halda náttfatapartý fyrir dansara sem vinna með henni.
Í viðtali við breska tímaritið Observer segir hún að fólk sem byrji að vinna mjög ungt nái aldrei að vaxa úr grasi þar sem það hefur aldrei fengið tækifæri til þess að vera börn.