Franski ofurhuginn Alain Robert, sem jafnan er nefndur Köngulóarmaðurinn, reyndi árangurslaust fyrir 12 árum að klífa byggingu í Sao Paulo í Brasilíu, sem þá var stærsta hús Suður-Ameríku. Í morgun lauk hann verkinu, lögreglu borgarinnar til lítillar gleði.
Robert hefur klifið mörg af hæstu húsum í heimi, stundum með samþykki húseigenda en oftar í óleyfi. Hann lagði stund á fjallgöngur í frönsku ölpunum en árið 1994 ákvað hann að snúa sér að manngerðum hæðum.