Lögregla í París áminnti Kate Moss og kærasta hennar úr hljómsveitinni The Kills, Jamie Hince, fyrir að dansa á gröf Jim Morrison í Pére Lachaise kirkjugarðinum í París.
Öryggisvörður leyfði Kate og Jamie að heimsækja gröf Morrison eftir að garðinum hafði verið lokað, en þau ákváðu að minnast Morrison með því að dansa á gröf hans og syngja lagið Alabama Song, sem Morrison söng árið 1967. Lögregla kom á staðinn og skammaði Kate og Jamie fyrir að hafa of hátt, en öryggisvörðurinn sem hleypti þeim inn fékk einnig áminningu.