Söngvari Velvet Revolver rekinn

Velvet Revolver.
Velvet Revolver. mbl.is

Rokkhljómsveitin Velvet Revolver hefur rekið Scott Weiland, söngvara hljómsveitarinnar, vegna hegðunarvanda hans, að því er kemur fram í tilkynningu frá hljómsveitinni.  Slash, gítarleikari Velvet Revolver, segir persónuleg vandamál Weilands hafa neytt hljómsveitina til þess að taka þessa ákvörðun.  Þá segir Slash að hljómsveitinni sé hugað um tónlistina og aðdáendur sína, en að hugur Weilands sé hjá hvorugu.

Fram kemur á fréttavef BBC að Weiland, sem er 40 ára, hafi verið handtekinn nokkrum sinnum fyrir að hafa fíkniefni undir höndum, og að hann neiti að hafa ekið undir áhrifum í síðasta mánuði.  Weiland hefur einnig farið nokkrum sinnum í meðferð vegna fíkniefnavandamála. 
Búist er við að Weiland muni spila á tónleikum á næstunni með Stone Temple Pilots sem nýlega tóku aftur saman eftir nokkurra ára hlé.   Hljómsveitin hefur ekki komið saman á tónleikum síðan árið 2001.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Leitaðu stuðnings við fyrirætlanir þínar áður en þú leggur af stað. Gakktu á undan með góðu fordæmi og gefðu þeim sem ekki virðast eiga það skilið annan sjens.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Steindór Ívarsson
2
Lucinda Riely og Lucinda Riley
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lilja Sigurðardóttir
5
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Leitaðu stuðnings við fyrirætlanir þínar áður en þú leggur af stað. Gakktu á undan með góðu fordæmi og gefðu þeim sem ekki virðast eiga það skilið annan sjens.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Steindór Ívarsson
2
Lucinda Riely og Lucinda Riley
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lilja Sigurðardóttir
5
Birgitta H. Halldórsdóttir