Fyrsta lagið af nýju Guns N´Roses plötunni, Chinese Democracy, sem hefur verið í vinnslu í nokkur ár, verður opinberlega gefið út á tölvuleiknum Rock Band 2, að því er fram kemur á fréttavef BBC. Lagið kallast Shackler´s Revenge, og kemur út ásamt leiknum í Bandaríkjunum í september.
Guns N´Roses gaf síðast út Spaghetti Incident? árið 1993 en lengi hefur verið beðið eftir nýju plötunni. Útgáfudagur hefur þó ekki verið gefinn út enn. Auk lags Guns N´Roses verða lög eftir Bob Dylan, AC/DC, og The Who.