Galdrastrákurinn Harry Potter mun koma Íslendingum fyrir sjónir með nýjum hætti í febrúar þegar leiklistarfélag Menntaskólans við Sund frumsýnir frumsaminn söngleik um hann. Verkið er byggt á fjórðu, fimmtu og sjöttu bókinni um Potter, sem er hugarfóstur breska rithöfundarins J. K. Rowling.
„Harry á að vera um 16 ára í söngleiknum sem við erum að setja upp. Krakkarnir í leikfélaginu eru 16–19 ára, þannig að þau hafa verið ung þegar fyrsta myndin kom út. Það var töluverður spenningur sem vaknaði þegar við tilkynntum þeim hvað við ætluðum að gera,“ segir Erlingur Grétar Einarsson, annar höfunda leikgerðarinnar.