Það er óhætt að segja að Íslendingar sjái spaugilegar hliðar á grafalvarlegu ástandi efnahagsmála á Íslandi. Nú hefur verið gert myndband sem sýnir James Bond á Íslandi og baráttu njósnarans við forsvarsmenn Seðlabanka Íslands. Það er hins vegar spurning um hvort reglur um höfundarétt séu brotnar í myndbandinu sem hægt er að horfa á hér á mbl.is.