Heyrist Ljósahátíð Bítlanna loksins?

Bítlarnir
Bítlarnir HO

Sir Paul McCartney segir að kominn sé tími til að tilraunaupptaka sem Bítlarnir gerðu árið 1967 fái að hljóma fyrir allra eyrum. Verkið heitir „Carnival of Light“ (Ljósahátíð) og tekur 14 mínútur í flutningi. Það hefur aðeins verið flutt einu sinni en aldrei gefið út. Það hefur þó öðlast nánast goðsagnakenndan sess meðal Bítlaunnenda, því þótt allskyns upptökur hljómsveitarinnar hafi verið gefnar út á liðnum árum, hefur aldrei bólað á þessu verki.

Upptakan var aðeins einu sinni leikin fyrir áheyrendur, á raftónlistarhátíð í London. McCartney hafði verið beðinn um að leggja fram verk og vissu flestir áheyrenda ekki að þeir voru í raun að hlýða á Bítlana. Að sögn má þar heyra bjagaða gítartóna, orgelhljóm, kverkaskolun og upphrópanir þeirra McCartneys og John Lennons.

McCartney kvaðst hafa sagt við félaga sína í hljómsveitinni, þegar þeir voru að hljóðrita sönginn í „Penny Lane“ í Abbey Road-hljóðverinu, að þeir skyldu bara láta gamminn geysa og láta allt flakka, hrópa og spila. Það þyrfti ekki að vera neitt vit í þessu. Hann mun hafa sagt í viðtali við BBC, sem útvarpað verður á fimmtudaginn kemur, að sér líki verkið vel því þarna séu Bítlarnir frjálsir. Brot úr viðtalinu birtist í The Observer.

McCartney kveðst eiga hljóðritunina á segulbandi. „Það er kominn tími til að hún fái sitt augnablik,“ segir hann. McCartney, sem löngum hefur verið talinn hvað melódískastur Bítlanna, segist þó lengi hafa haft áhuga á framúrstefnutónlist. Verkið „Carnival of Light“ hafi verið samið undir áhrifum frá framúrstefnutónskáldum á borð við John Cage og Karlheinz Stockhausen.

McCartney sagðist hafa viljað að verkið yrði með á „Anthology“ safnplötu Bítlanna en félagar hans lagst gegn því.

„Þá hlustuðum við á allt sem við tókum upp,“ segir McCartney. „Ég sagði að það væri frábært að hafa þetta með því það sýndi hvað við vorum að vinna með framúrstefnulegar hugmyndir. En það var blásið af. Strákunum leist ekki á það.“

Nú þarf McCartney að afla samþykkis Ringo Starrs og ekkna þeirra Lennons og George Harrisons fyrir því að gefa verkið út.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hugsanlegt er að þú verðir með hugmynd tengda tekjum og fjármálum á heilanum í dag. Gæfan er þér hliðholl í augnablikinu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Torill Thorup
3
Steindór Ívarsson
5
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hugsanlegt er að þú verðir með hugmynd tengda tekjum og fjármálum á heilanum í dag. Gæfan er þér hliðholl í augnablikinu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Torill Thorup
3
Steindór Ívarsson
5
Birgitta H. Halldórsdóttir