Lögreglan í Svendborg á Fjóni hefur fengið þjófnaðartilkynningu frá eiganda íslensks hests. Lögreglan leitar nú að óprúttnum einstaklingi sem klippti faxið af hestinum, eða sem nemur hálfum metra.
Eigandinn, sem býr í Pudseløkke skammt frá Rudkøbing, segir að þetta hafi gerst sl. föstudag á milli kl. 10:45 og 11:30, en þá var hesturinn úti.
Lögreglan, sem segir þetta falla undir skemmdarverk, óskar eftir því að sjónvarvottar gefi sig fram.
Þetta kemur fram á vef Fiens Stiftsidende.