Bardagaíþróttamaðurinn knái, Gunnar Nelson, hafði sigur í kvöld á Bretanum Sam Elsdon í atvinnumannabardaga á stóru alþjóðlegu móti í London.
Sigurganga Gunnars í íþróttinni heldur því áfram. Bretinn hafði til þessa verið ósigraður í blönduðum bardagalistum og árangur Gunnars því frábær. Elsdon er með svarta beltið í júdó og þykir höggþungur hnefaleikari, með tíu ára reynslu í tælensku sparkboxi.