Eyjafjallajökull hefur hlotið athygli um heim allan undanfarna daga og meira að segja eignast sitt eigið lag. Nú verður jökullinn einnig festur á úrskífu. Er það úraframleiðandinn Romain Jerome vinnur sem vinnur að framleiðslu armbandsúrs sem prýtt er mynd af eldgosinu í Eyjafjallajökli og hlotið hefur nafnið Eyjafjallajokull DNA.
Á úrið að geyma ösku og hraun úr Eyjafjallajökli og mun fylgja skírteini því til sönnunar.
Jerome þessi hannaði á sínum tíma einnig úr tileinkað Titanic skipinu og raunar einnig úr sem geyma á tunglryk.