Ný íslensk kvikmynd, Sumarlandið, verður frumsýnd í september. Um er að ræða grínmynd um fjölskyldu sem rekur álfatengda ferðaþjónustu og býður upp á miðilsfundi. Stilka úr myndinni er nú frumsýnd á mbl.is.
Grímur Hákonarson leikstýrir myndinni og gerði einnig handrit ásamt Ólafi Agli Egilssyni. Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Kjartan Guðjónsson leika aðalhlutverkin.