„Ég hef alltaf haft gaman af epískum tónverkum“

Gunnar Ingi býður hlustendum upp á ævintýralega upplifun.
Gunnar Ingi býður hlustendum upp á ævintýralega upplifun. Ljósmynd/Úr einkasafni

Gunnar Ingi Guðmundsson, lagahöfundur, bassaleikari og tónskáld, sendir frá sér í dag, föstudaginn 6. september, aðra sólóplötu sína og ber hún heitið My kind of Epic. Um er að ræða EP-plötu sem inniheldur fjögur ný tónverk eftir Gunnar Inga í svokölluðum epískum stíl.

„Á þessari nýju plötu er ég svona nokkurn veginn að lýsa minni eigin hugmynd um það hvernig epísk tónlist á að vera og hljóma. Ég hef alltaf haft gaman af epískum tónverkum með stórum hljómheimi sem og mikið af hljómum,” útskýrir Gunnar Ingi sem sækir reglulega innblástur í tónverk Hans Zimmer, John Williams, Alan Silvestri, James Horner og annarra þekktra tónskálda.

„Ég reyni að taka hlustandann í einhvers konar ferðalag í gegnum ákveðið þema með tónlistinni á plötunni líkt og ég gerði á fyrstu plötunni minni Eyðibýli sem kom út í fyrra. Tónverkin eru afar ólík en í þeim er að finna allt frá dramatík, sorg og dimmleika og alveg upp í ævintýraleg tónverk.”

Plötuumslagið er fallegt.
Plötuumslagið er fallegt. Ljósmynd/Úr einkasafni

Upptökuferlið var mjög skemmtilegt

„Ég byrjaði að vinna svokallaðar demo-upptökur í nóvember á síðasta ári. Þá var ég staddur úti í Póllandi í Sync Camp-vinnubúðum á vegum STEF ásamt 18 öðrum höfundum og tónskáldum frá ýmsum löndum. Opnunarverk plötunnar Journey to the Magical World er afrakstur úr þessum vinnubúðum.

Hin tónverkin samdi ég hérna heima. Flestar hugmyndirnar komu óvænt upp í kollinn þegar ég settist niður við píanóið og byrjaði bara að spila eitthvað út í loftið. Ég beið bara eftir að geta gripið eitthvað stef eða laglínu til að vinna með og þróa nýtt tónverk út frá því.”

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú lítur alltaf á björtu hliðarnar og það virkar vel. Losaðu þig við gamalt dót, þér líður svo miklu betur á eftir.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Ragnheiður Jónsdóttir
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Unnur Lilja Aradóttir
5
Moa Herngren
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú lítur alltaf á björtu hliðarnar og það virkar vel. Losaðu þig við gamalt dót, þér líður svo miklu betur á eftir.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Ragnheiður Jónsdóttir
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Unnur Lilja Aradóttir
5
Moa Herngren